25.07.26 - 15:31
Brynjar Ingi Erluson
Howe: Ekki hægt að líkja þessu við Isak-málið

Bruno Guimaraes

Mynd: EPA

Eddie Howe

Mynd: EPA

Bruno Guimaraes

Mynd: EPA
Eddie Howe, stjóri Newcastle United, segist ekki koma að viðræðum um framtíð brasilíska fyrirliðans Bruno Guimaraes en býst við að hann snúi aftur til æfinga eftir nokkra daga.
Guimaraes hefur verið frábær fyrir Newcastle frá því hann gekk til liðs við félagið frá Lyon árið 2022.
Hann tók við fyrirliðabandinu í ágúst 2024 og átti stóran þátt í því að færa Newcastle fyrsta stóra titilinn í 70 ár þegar liðið lagði Liverpool í úrslitaleik enska deildabikarsins í fyrra.
Nú vill Guimaraes yfirgefa Newcastle. Hann telur tímabært að taka næsta skref á ferlinum og spila á allra stærsta sviðinu. Arsenal hefur sett Brasilíumanninn á óskalistann en er enn talsvert frá þeirri upphæð sem Newcastle vill fá fyrir hann.
Howe var spurður út í framtíð fyrirliðans.
„Ég hef rætt við Bruno, bæði á meðan heimsmeistaramótinu stóð og eftir mótið. Við höfum átt mörg góð samtöl og hann er alveg stórkostleg manneskja.“
„Ég veit ekki hvað gerist hjá honum. Aðrir sjá um þann hluta og ég hef ekki komið að þeim samtölum,“ sagði Howe.
Erfitt mál kom upp hjá Newcastle síðasta sumar þegar Alexander Isak neitaði að mæta til æfinga og reyndi þannig að knýja fram sölu til Liverpool. Honum varð að ósk sinni undir lok félagaskiptagluggans þegar Liverpool greiddi um 125 milljónir punda fyrir Svíann, sem var metfé í ensku úrvalsdeildinni.
Howe telur þó ekki rétt að bera mál Guimaraes saman við brotthvarf Isaks.
„Mér finnst ekki sanngjarnt að líkja þessu saman. Það verður að meta hvert mál fyrir sig. Bruno er fyrirliði félagsins og hefur verið stórkostlegur allan þann tíma sem við höfum unnið saman.“
„Ég tala fyrir hönd allra hjá félaginu þegar ég segi að okkur þykir afar vænt um hann og viljum auðvitað halda honum,“ sagði Howe.
Að öllu óbreyttu snýr Guimaraes aftur til æfinga hjá Newcastle eftir sex daga.
„Hann á að mæta aftur 31. júlí og ekkert bendir til þess að hann skili sér ekki,“ sagði Howe.