Belgi orðaður við Man Utd - Óskalisti Alonso ef hann tekur við Liverpool - Juventus veitir Arsenal samkeppni um Goretzka
Arnar: Þurfum að taka doktorsprófið í að verða alvöru lið
Siggi Höskulds: Megum ekki vera svona barnalegir í sumar
Gummi Tyrfings: Við slökktum í þeim frá fyrstu mínútu
Allur pakkinn dró Djuric norður - „KA er stórveldið á Akureyri"
Óskar Hrafn: Forréttindi að þjálfa þessa tvo ungu menn
Jökull: Eitthvað sem enginn hjá okkur sættir sig við
Leandro: Þegar maður stendur sig vel á Íslandi skapast ýmis tækifæri
Þrenna í fyrsta leik - „Þetta er það sem okkur hefur vantað"
„Töluvert síðan að hópurinn var klár en hann var ekki að spila leikinn í dag"
Siggi Höskulds: Eins og að vera mættur á Pollamótið aftur
Hemmi Hreiðars: Ekki nálægt því að vera þannig
Erfitt að fá mínútur hjá Víkingi - „Vonandi get ég haldið þessu áfram“
Nýliðinn ósáttur þrátt fyrir stóra sviðið: „Við hefðum getað gert aðeins betur“
Alexandra: „Leyfðum þeim að krossa full auðveldlega"
Stigalausar og markalausar - „Auðvitað dreymir mann alltaf um eitthvað“
Fyrirliðinn sér bjarta framtíð: „Hún er á svipuðum aldri og ég þegar ég kom fyrst inn“
Fyrrum leikmaður ÍBV og landsliðsmarkvörður Englands um leikinn
Vilja Fanneyju og Guðrúnu með á eyðieyjuna
Glódís fyrir leikinn gegn Englandi: „Mætum með kassann úti“
Karólína Lea: Þurfum að passa vinkonu mína, hún er heit
   fim 25. ágúst 2016 22:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Luka Kostic: Auðvelt að verða betri en pabbi
Luka Kostic
Luka Kostic
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Luka Kostic, þjálfari Hauka var nokkuð hress í viðtali við Fótbolta.net, þrátt fyrir 1-0 tap gegn Keflavík í kvöld.

Frans Elvarsson skoraði eina mark leiksins í fyrri hálfleik en Luka segir sitt lið hafa verið líklegra í hálfleiknum.

Lestu um leikinn: Keflavík 1 -  0 Haukar

„Við vorum líklegri en þeir til að skora í fyrri hálfleik. Þeir skora mark en við áttum 5-6 frábærar sóknir sem enduðu ekki með marki."

Hann segir seinni hálfleikinn ekki hafa verið merkilegan.

„Í seinni hálfleik fjaraði þetta út, við vorum ekki að ógna þeim neitt og þeir ekki okkur, þetta var dauður leikur allan tíman."

Dagur Dan Þórhallsson, ungur leikmaður Hauka kom inná í seinni hálfleik en hann er sonur Þór­hall­s Dan Jó­hanns­sonar, aðstoðarþjálfara Hauka og fyrrum leikmann liðsins. Luka segir hann ætla að verða betri en pabbi sinn.

„Hann verður pottþétt betri en pabbi, það er auðvelt að verða betri en pabbi."

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner