Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 25. ágúst 2019 11:09
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
„Shaw og Martial æfa vonandi í vikunni"
Luke Shaw í baráttunni við Luka Milivojevic í gær.
Luke Shaw í baráttunni við Luka Milivojevic í gær.
Mynd: Getty Images
Anthony Martial og Luke Shaw meiddust í gær er United tapaði gegn Crystal Palace á Old Trafford í ensku úrvalsdeildinni. Palace leiddi í hálfleik, 0-1. Daniel James jafnaði leikinn þegar skammt var eftir en Patrick van Aanholt tryggði Palace sigurinn í uppbótartíma.

Luke Shaw þurfti að yfirgefa völlinn og kom Ashley Young inn í hans stað. Anthony Martial meiddist eftir að United hafði jafnað leikinn. Martial var svo gott sem hreyfingarlaus það sem eftir lifði leiks, United liði var búið með skiptingarnar og átti Martial erfitt með að stíga í aðra löppina.

Ole Gunnar Solskjær, stjóri United, var bjartsýnn í viðtali eftir leik.

„Við verðum að bíða og sjá. Vonandi eru þeir ekki illa meiddir. Vonandi geta þeir æft í vikunni."
Athugasemdir
banner
banner
banner