25.09.26 - 13:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hárrétt ákvörðun að fara frá Man Utd

Átti frábært tímabil með Everton á síðustu leiktíð.

Mynd: EPA

Í leik með United.

James Garner fór árið 2022 frá Manchester United, var þá keyptur til Everton á 15 milljónir punda.
Garner var í vikunni kallaður inn í enska landsliðshópinn vegna meiðsla annarra leikmanna.
Hann ræddi um ákvörðunina á sínum tíma að fara frá United.

„Ég held að þetta hafi verið fullkomið fyrir mig. Ég hef aldrei verið feiminn við að fara út fyrir þægindarammann. Ég fór þrisvar á láni og var því ekki stressaður að flytja og skipta um umhverfi."
„Þetta snerist um að spila leiki og Everton var fullkomið val á þeim tímapunkti. Ég vildi ekki fara eitthvert og vera á bekknum, ég vildi far í lið þar sem mér myndi líða þannig að ég gæti barist fyrir stöðu í liðinu og það er það sem ég hef gert síðustu 3-4 ár."
Sér hann eftir því að hafa farið frá Old Trafford?
„Nei, eiginlega ekki. Ég trúi á að allt gerist út af einhverri ástæðu. Þegar ég fór þá voru fengnir inn þrír eða fjórir miðjumenn, leikmenn í heimsklassa. Ef ég hefði verið áfram þá væri ég ekki á þessum stað í dag, svo ég er meira en ánægður að hafa farið," segir Garner sem er 25 ára miðjumaður.