25.09.26 - 11:08
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Mattías Kjeld í KR (Staðfest)

Mynd: KR

Mynd: KR

Mynd: KR
Mattías Kjeld er genginn í raðir KR, kemur frá Gróttu og skrifar undir þriggja ára samning í Vesturbænum. KR kaupir hann af Gróttu.
Mattías er nýorðinn 17 ára og var í sumar efnilegasti leikmaður Lengjudeildarinnar en hann skoraði tíu mörk í deildinni. Hann er samkvæmt upplýsingum Fótbolta.net yngsti leikmaður sögunnar til að skora tíu deildarmörk í efstu tveimur deildunum. Hann kom í Gróttu frá Val fyrir tímabilið í ár.
Það var Sigurður Egill Lárusson, besti leikmaður Lengjudeildarinnar á tímabilinu, sem sagði fyrst frá því að Mattías væri á leið í KR en það gerði hann í Innkastinu sem hlusta má í spilaranum neðst.

TENGT EFNI
Sá efnilegasti á förum frá Gróttu - „Með nokkuð góðar heimildir fyrir því að hann endi í KR"
Mattías hefur leikið 11 leiki fyrir yngri landslið Íslands og skorað í þeim þrjú mörk. Hann fær leikheimild með KR þegar félagaskiptaglugginn opnar eftir áramót.
Grótta mun alltaf eiga sérstakan stað í mínu hjarta
„Saga Mattíasar Kjeldar með Gróttu er skýrt dæmi um það sem félagið stendur fyrir. Hér fá ungir leikmenn tækifæri til að blómstra, þróast og taka næsta skref. Mattías kom til okkar í mars og nýtti umhverfið svo sannarlega til hins ýtrasta. Við erum stolt af því að hafa fengið að vera hluti af hans vegferð og sjá hann vaxa sem knattspyrnumann og einstakling. Hann bætist í stóran hóp leikmanna úr okkar röðum sem hafa verið valdir efnilegastir í deildinni undanfarin ár. Þetta endurspeglar þá stefnu sem Grótta hefur markað. Við óskum Mattíasi alls hins besta á nýjum stað og hlökkum til að fylgjast með honum halda áfram að vaxa," segir Arnar Axelsson sem er yfirmaður fótboltamála hjá Gróttu.
„Mér var tekið vel frá fyrsta degi og félagið hefur hjálpað mér mikið í minni þróun sem leikmaður. Ég vil þakka Rúnari, Paul og strákunum í liðinu fyrir frábært tímabil. Grótta mun alltaf eiga sérstakan stað í mínu hjarta og ég mun spenntur fylgjast með félaginu og styðja við bakið á þeim í framtíðinni. Takk fyrir mig Grótta," er haft eftir Mattíasi í tilkynningu Gróttu.