Fotbolti.net
22.09.26 - 13:41
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Sá efnilegasti á förum frá Gróttu - „Með nokkuð góðar heimildir fyrir því að hann endi í KR"

Sá efnilegasti á förum frá Gróttu - „Með nokkuð góðar heimildir fyrir því að hann endi í KR"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mattías Kjeld, leikmaður Gróttu, var í gær hér á Fótbolti.net valinn efnilegasti leikmaður tímabilsins í Lengjudeildinni.

Mattías er fæddur árið 2009 og kom í Gróttu frá Val fyrir tímabilið. Hann skoraði tíu mörk í Lengjudeildinni og lagði upp tvö.

Sigurður Egill Lárusson, besti leikmaður Lengjudeildarinnar í sumar, var gestur í Innkastinu í dag og sagðist hann hafa góðar heimildir fyrir því að Mattías væri á leið í KR.
Lið ársins og bestu menn í Lengjudeildinni 2026
TENGT EFNI

Lið ársins og bestu menn í Lengjudeildinni 2026

„Ég var að heyra að Mattías Kjeld sé á leiðinni í KR, stutt að fara af Nesinu. Ég er með nokkuð góðar heimildir fyrir því að hann endi í KR," segir Siggi í þættinum.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net er ljóst að Mattías fer frá Gróttu í vetur en ekki er frágengið að hann fari í KR. KR hefur mikinn áhuga og Valur hefur sömuleiðis áhuga á því að fá hann aftur í sínar raðir. Reyndar hafa flest félögin í Bestu deildinni áhuga á því að fá þennan efnilega leikmann í sínar raðir. Þá er einnig áhugi á honum frá félögum í Noregi, Svíþjóð og Belgíu.

Mattías er með skráðan samning við Gróttu út næsta ár. Hann á að baki ellefu leiki fyrir yngri landsliðin og hefur í þeim skorað þrjú mörk.
Sá efnilegasti á förum frá Gróttu - „Með nokkuð góðar heimildir fyrir því að hann endi í KR"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sá efnilegasti á förum frá Gróttu - „Með nokkuð góðar heimildir fyrir því að hann endi í KR"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Innkastið - Siggi Lár og rígurinn rosalegi

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.