Fotbolti.net
25.09.26 - 08:07
Elvar Geir Magnússon

Mikil breyting á Rooney sem blæs á kjaftasögur

Rooney í dag og Rooney að störfum sumarið 2024.

Rooney í dag og Rooney að störfum sumarið 2024.

Canon

Mynd: Disney/Hafliði Breiðfjörð

„Ég hef séð mikið talað um að ég sé á þessu pennadæmi. Það er kjaftæði og leiðinleg umræða því ég hef lagt á mig mikla vinnu til að léttast," segir Wayne Rooney.

Þessi fyrrum sóknarmaður Englands og Manchester United hefur lést mikið með breyttum lífsstíl og sást það bersýnilega þegar hann mætti á frumsýningu á nýjum þáttum um Rooney fjölskylduna sem sýndir verða á Disney+.

Rooney, sem er 40 ára, blæs á sögur um að hann hafi notað hinn svokallaða 'megrunarpenna' heldur hafi árangurinn einfaldlega náðst með æfingum og breyttu mataræði.

Rooney fór í þjálfun eftir að ferlinum lauk en hefur að undanförnu haslað sér frekari völl sem sparkspekingur í fjölmiðlum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.