25.10.26 - 13:54
Brynjar Ingi Erluson
Mega ekki ræða fótbolta við Kompany

Vincent Kompany

Mynd: EPA

Vincent Kompany

Mynd: EPA
Öllum þeim sem hyggjast heimsækja Vincent Kompany, þjálfara Bayern München í Þýskalandi, hefur verið bannað að ræða við hann um fótbolta.

TENGT EFNI
Kompany verður frá í nokkrar vikur
BILD greinir frá því að Bayern hafi gefið skýr fyrirmæli um að aðeins megi ræða við Kompany um daginn og veginn, en allar umræður um fótbolta séu bannaðar.
Kompany hneig niður á æfingasvæði Bayern og var í kjölfarið fluttur á sjúkrahús. Hann mun ekki stýra liðinu næstu vikurnar á meðan hann jafnar sig.
Þýskir fjölmiðlar hafa greint frá því að Kompany hafi verið orðinn svo upptekinn af liðinu að hann hafi farið að ofhugsa og kryfja hvert einasta smáatriði til mergjar. Hann hafi jafnframt vakað langt fram eftir við vinnu sína og þannig skapað mikið álag, bæði andlega og líkamlega.
Kompany er enn á sjúkrahúsi og verður þar áfram næstu daga. Skilaboðin eru hins vegar skýr. Enginn á að ræða fótbolta við hann á meðan hann er að jafna sig.
Bati Belgans er í algjörum forgangi og á hann að geta einbeitt sér alfarið að því að ná heilsu á ný, án þess að þurfa að hafa áhyggjur af liðinu eða því álagi sem fylgir starfinu.