25.10.26 - 13:22
Brynjar Ingi Erluson
Carrick um Bruno: Alltaf erfitt að taka þessar ákvarðanir

Bruno Fernandes, fyrirliði United, er á bekknum

Mynd: EPA

Lisandro er einnig á bekknum

Michael Carrick, stjóri Manchester United, hefur útskýrt ákvörðun sína að hafa þá Bruno Fernandes og Lisandro Martínez á bekknum gegn Bournemouth í dag.

TENGT EFNI
Byrjunarliðin í enska: Bruno settur á bekkinn
Fernandes, sem er fyrirliði United, er settur á bekkinn eftir slaka frammistöðu það sem af er tímabili.
Ákvörðunin kemur aðeins nokkrum dögum eftir að hann gagnrýndi þjálfarateymið í kjölfar 4-1 tapsins gegn Como í Meistaradeildinni.
„Þegar þú hefur úr mörgum leikmönnum að velja er alltaf erfitt að taka þessar ákvarðanir. Við verðum að taka rétta ákvörðun fyrir þennan leik og velja þá leikmenn sem við teljum geta skilað þeirri frammistöðu sem við viljum,“ sagði Carrick.
Carrick var spurður hvort ákvörðunin um að setja Fernandes á bekkinn væri eingöngu tekin af fótboltalegum ástæðum og staðfesti hann að svo væri.
„Eingöngu af fótboltalegum ástæðum,“ sagði Carrick um ákvörðunina.
Martínez er sömuleiðis ekki í nægilega góðu standi til að byrja leikinn.
„Hann er ekki alveg orðinn hundrað prósent. Við vorum að bíða og sjá hvernig staðan yrði, en þetta var ekki áhættunnar virði. Ayden hefur verið að glíma við veikindi síðan í byrjun vikunnar og hefur spilað vel þegar hann hefur verið til taks. Ég er ánægður með liðið sem við stillum upp og svo erum við með sterka leikmenn á bekknum. Við þurfum að sýna góða frammistöðu.“
„Í hverjum einasta leik, á hvaða stigi sem er, hvort sem það er hjá þessu félagi eða annars staðar, þarftu að sýna þrautseigju og áræðni til að ná úrslitum. Bournemouth er gott lið og við þurfum að vera upp á okkar besta.“
„Þetta er næsti leikur hjá okkur. Við höfum undirbúið okkur eins og við gerum fyrir alla aðra leiki. Við viljum snúa gengi liðsins við og við viljum vinna fótboltaleiki. Í dag er góður dagur til að reyna að gera það,“ sagði Carrick.