25.10.26 - 13:36
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Inter sneri taflinu við í uppbótartíma

Marcus Thuram skoraði og fiskaði vítaspyrnu í uppbótartíma

Mynd: EPA

Inter 2 - 1 Fiorentina
0-1 Alex Jimenez ('65 )
1-1 Marcus Thuram ('90 )
2-1 Piotr Zielinski ('90 , víti)
0-1 Alex Jimenez ('65 )
1-1 Marcus Thuram ('90 )
2-1 Piotr Zielinski ('90 , víti)
Ítalíumeistarar Inter unnu dramatískan 2-1 sigur á Fiorentina í Seríu A á Ítalíu í dag, en liðið sneri leiknum sér í vil með tveimur mörkum í uppbótartíma.
Bakvörðurinn Alex Jimenez braut ísinn á 65. mínútu með stórkostlegu marki. Hann lét líta út fyrir að hann ætlaði að senda háan bolta inn á teiginn og blekkti þannig markvörð Inter, en í staðinn þrumaði hann boltanum efst upp í nærhornið með glæsilegu skoti utan teigs. Stórkostleg tilþrif hjá Spánverjanum.
Fiorentina hélt forystunni þar til venjulegum leiktíma lauk, en þá vöknuðu leikmenn Inter heldur betur til lífsins. Marcus Thuram jafnaði metin eftir að hafa fengið boltann í gegn hægra megin, leikið með hann að vítateigslínunni og tekið laglegt þríhyrningsspil við Andy Diouf áður en hann renndi boltanum neðst í hægra hornið.
Dramatíkinni var þó hvergi nærri lokið því seint í uppbótartímanum var Thuram rifinn niður innan vítateigs og Inter fékk vítaspyrnu. Piotr Zielinski steig á punktinn og skoraði sigurmarkið, Inter til mikils léttis.
Með sigrinum endurheimti Inter toppsætið af Lazio og er nú með 22 stig, jafnmörg og Lazio sem er með lakari markatölu. Fiorentina situr hins vegar í 18. sæti með aðeins fjögur stig.