Fotbolti.net
26.02.24 - 16:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Líklegt byrjunarlið Íslands - Hversu margar breytingar?

Stemning á landsliðsæfingu í gær.

Stemning á landsliðsæfingu í gær.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
Ísland mætir Serbíu á Kópavogsvelli klukkan 14:30 á morgun. Er þetta síðari leikur liðanna í tveggja leikja einvígi í umspili Þjóðadeildarinnar. Ef Ísland vinnur leikinn á morgun þá heldur liðið sér í A-deild sem eykur líkurnar á því að liðið fari á Evrópumótið 2025.

En hvernig verður liðið eiginlega á morgun? Við sjáum ekki fyrir okkur að Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari, breyti miklu á milli leikja.


Við spáum því að ein breyting verði gerð á liðinu, að Hafrún Rakel Halldórsdóttir komi inn fyrir Diljá Ýr Zomers. Sveindís Jane Jónsdóttir færi sig þá yfir á vinstri kantinn en það er spurning hvort það komi meira úr henni þar.

Eins og áður segir, þá er leikurinn 14:30 á morgun. Leiktíminn er skrítinn en vonandi geta sem flestir mætt á leikinn.https://stjornbord.fotbolti.net/stjornbord/news.php
Hafrún Rakel Halldórsdóttir, leikmaður Bröndby.

Hafrún Rakel Halldórsdóttir, leikmaður Bröndby.

Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.