Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   sun 26. mars 2023 10:08
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Barcelona sýndi Elanga áhuga - „Er að einbeita mér að United"
Mynd: EPA

Anthony Elanga leikmaður Manchester United ræddi við Aftonbladet á dögunum um áhuga Barcelona á sér.


Þessi tvítugi Svíi hefur ekki fengið mikinn spiltíma hjá United á þessari leiktíð en hann talaði um það að Barcelona hafði sýnt honum áhuga í janúar.

„Það var einhver umræða en ég er að einbeita mér að United. Það er risa tímabil í gangi og við þurfum að enda það eins vel og hægt er. Þetta var í janúar, ég get ekki hugsað um það núna. Það besta sem ég get gert er að einbeita mér af restinni af tímabilinu og svo get ég rætt við félagið," sagði Elanga.

„Ég elska félagið en það er mikilvægt fyrir mig að spila, ég er enn ungur. Við höfum rætt við félagið og þeir vita hvað þarf að gera og ég veit hvað þarf að gera."


Athugasemdir
banner
banner