Þrettán leikmenn gætu yfirgefið Man Utd - Liverpool á eftir leikmanni Betis
   sun 26. apríl 2026 15:18
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Myndir: Fékk rautt fyrir að rífa í hár Kimberley - „Fáránlegt brot"
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Besta deild kvenna byrjaði að rúlla um helgina. Nýliðar Grindavíkur/Njarðvíkur töpuðu naumlega 2-1 gegn Val á Hlíðarenda í gær.

Það kom upp atvik í blálokin þegar Maci Nicole Teater, leikmaður gestanna, fékk rautt spjald fyrir að rífa í hárið á Kimberley Dóru Hjálmarsdóttur.

Lestu um leikinn: Valur 2 -  1 Grindavík/Njarðvík

„Beint rautt fyrir að rífa í hárið á Kimberly! Þetta var fáránlegt brot og ótrúlega dýrkeypt fyrir nýliðana. Fer væntanlega í 2 leikja bann! Fáránleg ákvörðunartaka," skrifaði Snæbjört Pálsdóttir í textalýsingu leiksins.

Sjáðu myndband af atvikinu úr útsendingu Sýnar Sport
og myndir sem Hafliði Breiðfjörð tók á Hlíðarenda.


Slapp
banner
banner