Nicolas Jackson mun fara aftur til Chelsea í sumar þegar lánssamningur hans við Bayern rennur út.
Bayern þurfti að kaupa hann ef senegalski framherjinn myndi spila ákveðið marga leiki en Max Eberl, yfirmaður fótboltamála hjá Bayern, segir að ekkert verði úr því.
„Við þurfum ekki að nýta okkur kaupréttinn því hann hefur ekki náð tilskildum fjölda leikja. Hvað sem gerist munum við ekki nýta þann möguleika," sagði Eberl.
Jackson hefur komið að 14 mörkum í 29 leikjum fyrir Bayern en hann skoraði í mögnuðum 4-3 endurkomusigri liðsins gegn Mainz í gær.




