26.05.04 - 07:18
Hafliði Breiðfjörð
Freyr Karlsson til Þróttar (Staðfest)


Mynd: Fram.is


Mynd: Fram.is
Framarinn Freyr Karlsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Þróttara. Fótbolti.net greindi frá því í fyrradag að þetta stæði til en gengið var frá samningum svo í gær eftir að Fram hafði leyst hann undan samningi daginn áður. Freyr er 25 ára gamall og hefur spilað með Fram undanfarin ár að undanskilnu einu sumri sem hann var hjá Víkingum. Hjá Þrótti hittir hann fyrir Ásgeir Elíasson þjálfara sem þjálfaði Fram í mörg ár, þar á meðal fyrstu ár Freys hjá Fram.
