26.05.04 - 16:44
Smith til Man Utd (Staðfest)

Alan Smith

Alan Smith

Manchester United hafa klófest sóknarmanninn Alan Smith frá Leeds United. Smith mun kosta 7 milljónir punda en þessi 23 ára gamli umdeildi kappi stóðst læknisskoðun nú síðdegis. Hann skrifaði undir fimm ára samning við Rauðu Djöflana.
Smith hefur fengið mikið hrós fyrir baráttu sína en aftur á móti verið harðlega gagnrýndur fyrir fantaskap sinn og ljót brot. Hann hefur verið orðaður við margt liðið síðan Leeds féll en hann hafði gefið það út að han gæti ekki spilað í 1. deildinni þrátt fyrir að vera ástfanginn af Leeds.
Þetta ýtir undir það að Diego Forlan verði seldur í sumar en Luois Saha var keyptur í janúar og fyrir er að sjálfsögðu Ruud van Nistelrooy og frakkinn David Bellion. Norðmaðurinn Ole Gunnar Solskjær gæti líka farið en hann hefur verið orðaður við Celtic.