Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 26. maí 2022 17:51
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáðu bikarmörkin: Njarðvík rúllaði yfir Keflavík og ÍBV úr leik
Njarðvík lagði nágranna sína.
Njarðvík lagði nágranna sína.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það voru heldur betur óvænt úrslit í Mjólkurbikar karla í gær þegar Njarðvíkingar fóru illa með nágranna sína í Keflavík, 1-4.

Njarðvík er í 2. deild og Keflavík er á meðal félaga í Bestu deildinni.

RÚV hefur birt mörkin úr þeim leik og síðustu fjórum leikjunum sem kláruðust í keppninni á Twitter síðu sinni. Hægt er að sjá öll mörkin hér fyrir neðan.

FH gerði þrjú mörk í seinni hálfleik gegn Kára, ÍBV úr Bestu deildinni tapaði gegn Fylki sem er í Lengjudeildinni, KR lagði Stjörnuna og núna síðast vann Fram sigur á Leikni í framlengdum leik.

Núna er að klárast leikur KA og Reynis fyrir norðan og í kvöld eru svo tveir leikir.

Leikir kvöldsins:
19:15 Haukar-Víkingur R. (Ásvellir)
19:45 Breiðablik-Valur (Kópavogsvöllur)

Sjá einnig:
Sjáðu bikarmörkin: Óvænt úrslit á Dalvík og ÍA lenti í kröppum dansi






Athugasemdir
banner
banner
banner