Börsungar vilja Rashford aftur á láni - Ndidi gæti farið til Man Utd - Hár verðmiði á Tonali
Gylfi vonast til að vera mættur til að vera í landsliðinu - „Vonandi sem lengst“
Jökull: Sumt var full harkalegt
Adolf Daði: Ber miklar tilfinningar til Stjörnunnar
Jói Kalli: Skiptir máli þegar deildin byrjar
Arnar: Þurfum að taka doktorsprófið í að verða alvöru lið
Siggi Höskulds: Megum ekki vera svona barnalegir í sumar
Gummi Tyrfings: Við slökktum í þeim frá fyrstu mínútu
Allur pakkinn dró Djuric norður - „KA er stórveldið á Akureyri"
Óskar Hrafn: Forréttindi að þjálfa þessa tvo ungu menn
Jökull: Eitthvað sem enginn hjá okkur sættir sig við
Leandro: Þegar maður stendur sig vel á Íslandi skapast ýmis tækifæri
Þrenna í fyrsta leik - „Þetta er það sem okkur hefur vantað"
„Töluvert síðan að hópurinn var klár en hann var ekki að spila leikinn í dag"
Siggi Höskulds: Eins og að vera mættur á Pollamótið aftur
Hemmi Hreiðars: Ekki nálægt því að vera þannig
Erfitt að fá mínútur hjá Víkingi - „Vonandi get ég haldið þessu áfram“
Nýliðinn ósáttur þrátt fyrir stóra sviðið: „Við hefðum getað gert aðeins betur“
Alexandra: „Leyfðum þeim að krossa full auðveldlega"
Stigalausar og markalausar - „Auðvitað dreymir mann alltaf um eitthvað“
Fyrirliðinn sér bjarta framtíð: „Hún er á svipuðum aldri og ég þegar ég kom fyrst inn“
banner
   mið 26. júní 2024 20:23
Arnar Daði Arnarsson
Donni: Við vorum með vitlaust leikplan
Kvenaboltinn
Halldór Jón þjálfari Tindastóls
Halldór Jón þjálfari Tindastóls
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við byrjuðum illa yfir höfuð. Við vorum með vitlaust leikplan að vera pressa þær hátt. Við réðum ekki við það hvað þær voru hreyfanlegar. Við gefum annað markið, fyrsta markið var fínt hjá þeim en gefum þeim síðan annað markið sem var vont," sagði Halldór Jón Sigurðsson þjálfari Tindastóls eftir 4-1 tap gegn FH í 10. umferð Bestu deildar kvenna í kvöld.

Lestu um leikinn: FH 4 -  1 Tindastóll

Eftir að hafa verið 2-0 undir í hálfleik minnkuðu stelpurnar hans Donna hinsvegar muninn í 2-1 um miðbik seinni hálfleiks.

„Mér fannst við koma sterkari inn í leikinn í seinni hálfleik. Við breyttum leikplaninu undir lok fyrri hálfleiks og héldum því áfram í seinni hálfleik og það gekk miklu betur. Við skoruðum gott mark og hefðum getað jafnað í kjölfarið."

„Heilt yfir var ég ánægður með seinni hluta fyrri hálfleiks og fyrri hluta seinni hálfleiks."

Í upphafi leiks var mikill gæðamunur á liðunum og FH gat gert það sem þær vildu með boltann á meðan Tindastóll var í hálfgerðum eltingarleik.

„FH er með meiri gæði í sínu liði á boltann, engin spurning. Þær eru með leikmenn innan síns liðs sem hafa spilað á þessu leveli í fleiri ár og jafnvel með landsleiki og í atvinnumennsku. Eðlilega eru þær örlítið betri á boltanum, rútíneraðri og kunna hvað þær eru að gera betur."

En var Donni farinn að sjá fyrir sér jöfnunarmarkið í stöðunni 2-1?

„Orkan var klárlega farin að sveiflast okkar megin og þær voru farnar að sparka boltanum útaf því þær voru ráðalausar. Mér fannst þetta vera að sveiflast til okkar en síðan klára þær þetta með þriðja markinu því við höfðum ekki meiri orku eftir það til þess að skora tvö mörk og jafnvel þrjú. Það var í rauninni ómögulegt," sagði Halldór Jón þjálfari Tindastóls að lokum.
Athugasemdir
banner