Fotbolti.net
26.07.17 - 16:01
Elvar Geir Magnússon
Skrifar frá: Rotterdam

Guðmundur Marinó og dansóður Hollendingur

Auglýsing
Dansóði Hollendingurinn.

Dansóði Hollendingurinn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Hertz
Íþróttafréttamaðurinn Guðmundur Marinó Ingvarsson ræddi við Fótbolta.net rétt eftir að stuðningsmannasvæðið í Rotterdam opnaði í dag.

Það var þó innfæddur sem stal senunni en hann dansaði eins og óður maður við tóna plötusnúðsins.
Ísland mætir Austurríki í kvöld klukkan 18:45 að íslenskum tíma og hefur íslenska liðið að engu að keppa nema stoltinu. Ljóst er að stelpurnar okkar hafna í neðsta sæti riðilsins.

Guðmundur Marinó flokkar leikinn í kvöld sem æfingaleik og fyrsta skrefið í undirbúningi fyrir undankeppni HM sem hefst í haust.

„Maður var fúll lengi eftir að tapið gegn Sviss og skil vel þegar Freyr (Alexandersson) er enn fúll á fréttamannafundi daginn fyrir leik. Auðvitað er erfitt að sætta sig við þetta. Þetta er mjög svekkjandi,\" segir Guðmundur Marinó.

Sjáðu viðtalið og dansóða Hollendinginn í sjónvarpinu hér að ofan.
Guðmundur Marinó Ingvarsson.

Guðmundur Marinó Ingvarsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.