Ungt lið Man Utd tapaði fyrir Wrexham í grófum æfingaleik

Paul Mullin lenti í harkalegum árekstri.

Mynd: Getty Images

Ryan McElhinney.

Það var áhugaverður æfingaleikur í San Diego í Bandaríkjunum í nótt þegar enska D-deildarliðið Wrexham vann Manchester United 3-1. Harkan réði ríkjum í leiknum en United tefldi fram unglingaliði.
Aðalliðsleikmenn United hafa ferðast til Texas þar sem framundan er æfingaleikur gegn Real Madrid. Ungu strákarnir fengu því að spreyta sig gegn Wrexham fyrir framan Erik ten Hag sem var á bekknum.
Það voru þó ekki bara ungir leikmenn í byrjunarliði United því reynsluboltinn Jonny Evans spilaði þennan leik. Evans fékk stuttan samning við United eftir að hafa yfirgefið Leicester en hann þarf væntanlega að spila betur en hann gerði i þessum leik til að fá lengri samning.

Elliot Lee, Aaron Hayden og Sam Dalby skoruðu mörk Wrexham, eða Hollywood-liðsins. Uppselt var á leikinn, rúmlega 34 þúsund áhorfendur. Ryan Reynolds komst ekki á leikinn en meðeigandinn Rob McElhenney var á vellinum.
Hinn nítján ára gamli Marc Jurado skoraði mark United en liðið missti Dan Gore, sem er átján ára, af velli með rautt spjald snemma í seinni hálfleik.
Það var mikil harka í leiknum og slatti af spjöldum en leiðinlegt atvik átti sér stað þegar Paul Mullin, markahrókur Wrexham, lenti í hörðum árekstri við Nathan Bishop markvörð United. Mullin fékk súrefni þegar hann fór af velli.
Wrexham nýtur mikilla vinsælda en sjónvarpsþættir um félagið hafa slegið rækilega í gegn. Liðið endurheimti sæti sitt í ensku deildakeppninni á síðasta tímabili eins og frægt er.

Wrexham derrota a Manchester United (3-1) en juego amistoso en San Diego, California. ????? pic.twitter.com/vyubB0UNt8
— ESPN Deportes (@ESPNDeportes) July 26, 2023
???? TEAM-SHEET!
— United Ways (@UtdWays) July 26, 2023
Manchester United ????? Wrexham AFC.
???? Pre-season Friendly Match.
???? Snapdragon Stadium. ????????
???? 09.30 WIB / 03.30 BST.
???? LIVE on MUTV.#MUFC XI for today game: Bishop; Jurado, Fish, Evans, Fernández; Gore (c), Collyer; Hansen-Aarøen, Hannibal, Shoretire; Hugill. pic.twitter.com/uJ4lmRcxfO

Ryan McElhinney.

Mynd: Getty Images