Fotbolti.net
26.07.26 - 15:32
Brynjar Ingi Erluson

Iraola: Þetta eru líklega verstu tíðindin

Joe Gomez meiddist í fyrsta leik Liverpool

Joe Gomez meiddist í fyrsta leik Liverpool

Canon

Mynd: EPA

Andoni Iraola, stjóri Liverpool, var nokkuð ánægður með frammistöðu sinna manna í 4-2 sigrinum á Sunderland í sumarseríu ensku úrvalsdeildarinnar í Bandaríkjunum í nótt.
Æfingaleikir: LIverpool vann Sunderland og Wrexham lagði Leeds
TENGT EFNI

Æfingaleikir: LIverpool vann Sunderland og Wrexham lagði Leeds

Iraola stýrði Liverpool í fyrsta sinn og fékk að sjá unga leikmenn liðsins láta ljós sitt skína. Kieran Morrison og Lewis Koumas, sem eru báðir hluti af unglinga- og varaliðinu, skoruðu.

Dominik Szoboszlai skoraði þá stórglæsilegt mark fyrir utan teig og Federico Chiesa komst einnig á blað. Það bárust þó ekki aðeins góð tíðindi úr leiknum.

Joe Gomez meiddist í byrjun leiks og þurfti að fara af velli.

„Meiðsli Joe Gomez eru líklega verstu tíðindin úr leiknum. Við vorum ánægðir með að hafa komist í gegnum æfingarnar án meiðsla en því miður misstum við Joe strax í byrjun,“ sagði Iraola.

Franski miðvörðurinn Jeremy Jacquet kom ekki við sögu en Iraola segir það hafa verið varúðarráðstöfun.

Jacquet gekk til liðs við Liverpool í sumar eftir að hafa misst af síðari hluta síðasta tímabils með Rennes. Hann hefur æft vel á undirbúningstímabilinu en var ekki talinn tilbúinn í leikinn í nótt.

„Við ákváðum að láta Jeremy taka því rólega. Hann hefur ekki spilað í marga mánuði en hefur æft vel. Við vildum samt fara varlega með hann,“ sagði Iraola.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.