Logi Ólafsson: Bæði spjöldin af ódýrari gerðinni
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Leikurinn var ekkert sérstakur, við fáum á okkur tvö opin færi í fyrri hálfleik, Ingvar ver annað glæsilega og Tryggvi bjargar hinsvegar. Það fleytti okkur í gegnum þetta,\" sagði Logi Ólafsson þjálfari Stjörnunnar eftir 1-0 sigur á ÍA í kvöld.
,,Við vissum hvaða leikaðferð þeir beita, eru með háa bolta á Ármann. Við þurftum að gera breytingar á okkar liði útaf leikbönnum. Miðjumennirnir Atli og Michael eru úti svo það var ágætt að fá Tryggva inn í þennan slag í háloftunum.\"
Veigar Páll Gunnarsson fékk tvö gul á stuttum tíma og þar með rautt á 73. mínútu. Hvað hafði Logi um það að segja?
,,Mér finnst bæði spjöldin vera af ódýrari gerðinni. Það er mitt mat. Fyrra spjaldið er samstuð. Við lentum í því í síðasta leik þegar menn skella saman að þá fáum við spjaldið en þeir ekki. Svo er það aftur þannig núna en hann metur þetta hættulega tæklingu hjá honum í seinna spjaldinu.\"