Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 26. ágúst 2019 08:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Timo Werner framlengdi óvænt við RB Leipzig
Mynd: Getty Images
Sóknarmaðurinn Timo Werner er búinn að framlengja samning sinn við þýska félagið RB Leipzig til 2023.

Þessi tíðindi koma á óvart. Í apríl á þessu ári sagði Oliver Mintzlaff, framkvæmdastjóri Leipzig, að Werner vildi ekki framlengja við félagið. Honum hefur snúist hugur.

Talið er að Bayern München hafi verið að undirbúa að fá Werner á frjálsri sölu næsta sumar.

Samkvæmt þýska tímaritinu Kicker er riftunarákvæði í nýjum samningi Werner upp á 30 milljónir evra.

Werner er 23 ára gamall og hefur leikið með Leipzig frá 2016. Hann fagnaði nýjum samningi sínum með því að skora í 2-1 sigri gegn Eintracht Frankfurt í gær.
Athugasemdir
banner
banner