26.08.26 - 22:19
Brynjar Ingi Erluson
Adama Traore aftur í La Liga (Staðfest)

Mynd: Deportivo La Coruna

Mynd: Deportivo La Coruna
Spænski vængmaðurinn Adama Traore hefur samið við Deportivo La Coruna í heimalandinu, en félagið staðfestir komu hans í kvöld.
Traore var látinn fara frá West Ham eftir að félagið féll úr ensku úrvalsdeildinni.
Hinn þrítugi Spánverji samdi í kvöld við Deportivo La Coruna, sem er nýliði í La Liga. Hann skrifaði undir tveggja ára samning við félagið.
Traore snýr þar með aftur til Spánar en hann er uppalinn hjá Barcelona. Hann lék sinn fyrsta aðalliðsleik tímabilið 2013-14 og kom alls við sögu í fjórum leikjum á tveimur tímabilum.
Þaðan hélt hann til Englands þar sem hann lék með Aston Villa, Middlesbrough og Wolves við góðan orðstír. Hann sneri aftur til Barcelona á láni tímabilið 2021-22, lék 17 leiki og fór síðan aftur til Wolves.
Traore gekk til liðs við Fulham árið 2023 og dvaldi þar í tvö og hálft ár áður en hann samdi við West Ham í byrjun þessa árs.
Hann á að baki átta A-landsleiki fyrir Spán sem allir komu á árunum 2020 og 2021.

???????????????????? ????????????????????????? ???????? ????? ???????????????????????????????????????????? ????????
— RC Deportivo (@RCDeportivo) August 26, 2026
????? Adama Traoré, novo xogador do Dépor ata xuño de 2028
Benvido, Adama! ????
?? Toda a información na nosa web ???? pic.twitter.com/EfXRqlTwLP