Fotbolti.net
26.08.26 - 13:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Benfica kaupir Palhinha (Staðfest)

Benfica kaupir Palhinha (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Joao Palhinha er genginn í raðir Benfica en hann er keyptur frá Bayern München og greiðir portúgalska félagið 17 milljónir punda.

Palhinha er portúgalskur miðjumaður, 31 árs, og hittir hjá Benfica þjálfarann Marco Silva en þeir unnu saman hjá Fulham.

Aston Villa og Newcastle vildu fá Palhinha í glugganum en hann skrifar undir fjögurra ára samning í heimalandinu.
Hann var á la?i hjá Tottenham í fyrra og sagði Roberto De Zerbi, stjóri Tottenham, að hann vildi halda Palhinha hjá félaginu. Það gerðist ekki, en þeir Sandro Tonali og Mateus Fernandes voru fengnir inn á miðsvæðið hjá Spurs.

Bayern keypti Palhinha, sem uppalinn er hjá Sporting, frá Fulham 2024 en hann náði ekki að festa sig í sessi hjá þýska stórliðinu. Hann kom alls við sögu í 25 leikjum með Bayern og varð þýskur meistari tímabilið 2024-25.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.