Fotbolti.net
26.08.26 - 15:30
Elvar Geir Magnússon

Coventry krækir í Pinnock (Staðfest)

Alltaf gaman þegar sólin skín.

Alltaf gaman þegar sólin skín.

Canon

Mynd: Coventry

Coventry City hefur krækt í jamaíska varnarmanninn Ethan Pinnock frá Brentford. Kaupverðið á þessum 33 ára leikmani er sagt vera í kringum 6 milljónir punda.

Pinnock kom frá Barnsley 2019 og lék alls 216 leiki fyrir Brentford og skoraði tólf mörk. Hann átti eitt ár eftir af samningi sínum.

„Ég er gríðarlega spenntur fyrir því að ganga í raðir Coventry. Eftir 25 ára bið er félagið aftur í ensku úrvalsdeildinni og ég veit hve mikla þýðingu það hefur fyrir alla sem tengjast því. Ég get ekki beðið eftir því að taka þátt í því," segir Pinnock.

Pinnock var lykilmaður hjá Brentford þegar félagið komst upp í ensku úrvalsdeildina en missti svo sæti sitt í byrjunarliðinu og spilaði aðeins átta leiki í öllum keppnum á síðasta tímabili. Hjá Coventry hittir hann Frank Onyeka sem fór einnig frá Brentford í þessum glugga.

Coventry hefur eytt yfir 100 milljónum punda í sumar og er Pinnock tíundi leikmaðurinn sem félagið kaupir. Þá er hann annar varnamaðurinn eftir að Aurele Amenda kom frá Eintracht Frankfurt í síðasta mánuði.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Brighton1+43
2Arsenal1+33
3Brentford1+33
4Everton1+23
5Hull City1+23
6Chelsea1+13
7Man City1+13
8Ipswich Town1+13
9Leeds1+13
10Liverpool101
11Newcastle101
12Fulham1-10
13Sunderland1-10
14Bournemouth1-10
15Nott. Forest1-10
16Man Utd1-20
17Crystal Palace1-20
18Tottenham1-30
19Coventry1-30
20Aston Villa1-40
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.