26.08.26 - 11:47
Elvar Geir Magnússon
Disasi til Palace á láni (Staðfest)

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Crystal Palace hefur fengið miðvörðinn Axel Disasi á lánssamningi frá Chelsea út tímabilið.
Þessi 28 ára franski landsliðsmaður hefur ekki verið framarlega í goggunarröðinni hjá Chelsea og spilað á lánssamningum hjá Aston Villa og West Ham.
Palace var í leit að miðverði eftir að Maxence Lacroix var keyptur til Chelsea og þá fór Chadi Riad af velli á börum í 2-0 tapinu gegn Everton á laugardag.

Disasi segist vera ánægður með að vera kominn til Palace, félags sem sem sé á leið í rétta átt.
Part of the journey ???? pic.twitter.com/TSeqq1HyLY
— Crystal Palace F.C. (@CPFC) August 26, 2026