26.08.26 - 18:07
Brynjar Ingi Erluson
Lækka verðmiðann á Barcola um 30 milljónir punda

Bradley Barcola færist nær Liverpool

Mynd: EPA

Bradley Barcola færist nær Liverpool

Mynd: EPA
Evrópumeistarar Paris Saint-Germain ætla að lækka verðmiðann á franska landsliðsmanninum Bradley Barcola um 30 milljónir punda, en þetta segir blaðamaðurinn Paul Joyce hjá Times.
Liverpool og PSG halda áfram viðræðum um Barcola en enska félagið vonast til að ganga frá kaupunum fyrir lok félagaskiptagluggans.
PSG setti upphaflega 145 milljóna punda verðmiða á Barcola en hefur nú lækkað hann í 115 milljónir. Félögin hafa fundað síðustu daga og færst nær samkomulagi.
Liverpool hefur þegar samið við Barcola um kaup og kjör og bíður þess nú að félögin nái saman um kaupverðið. Takist það fær Frakkinn leyfi til að ferðast til Englands, gangast undir læknisskoðun og skrifa undir langtímasamning.
Barcola er 23 ára og hefur leikið með PSG undanfarin þrjú ár. Hann hefur unnið þrettán titla með félaginu og skoraði tvö mörk fyrir Frakkland á heimsmeistaramótinu í sumar þar sem liðið komst í undanúrslit.