Fotbolti.net
26.08.26 - 12:19
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Liverpool skiptir um skotmark og ætlar sér Sarr

Liverpool skiptir um skotmark og ætlar sér Sarr
Canon

Mynd: EPA

Liverpool hefur reynt að kaupa Yankuba Minteh af Brighton en Brighton vill fá of háa upphæð fyrir kantmanninn að mati Liverpool.

Liverpool hefur því skipt um skotmark og ætlar sér að fá Ismaila Sarr. Frá þessu greinir talkSPORT. Enski miðillinn segir að viðræður séu í gangi milli Liverpool og Crystal Palace um möguleg kaup Liverpool á leikmanninum. Samkvæmt óstaðfestum heimildum vill Palace fá yfir 50 milljónir punda fyrir Senegalann.

Sarr er 28 ára kantmaður og hefur lengi verið á blaði Liverpool. Sadio Mane, samlandi Sarr, vildi fá Sarr til Liverpool á sínum tima. Sarr er leikmaður Crystal Palace og telja menn að hann sé opinn fyrir því að fara til Liverpool.
Galatasaray hefur reynt að fá Sarr en án árangurs. Hann var ekki í hópnum gegn Everton í fyrstu umferð deildarinnar.

Sarr hefur spilað frábærlega fyrir Palace og Watford gegn Liverpool, skorað sjö sinnum og lagt upp tvö mörk í tíu leikjum.

Hann hefur verið hjá Palace síðan 2024 en þá kom hann frá Marseille.

Hjá Palace hefur Sarr unnið þrjá titla. Á síðasta tímabili skoraði hann 21 mark í öllum keppnum og tímabilið þar á undan skoraði hann tólf mörk.
Liverpool skiptir um skotmark og ætlar sér Sarr
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.