26.09.26 - 17:58
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Einkunnir Íslands - Bjargaði okkur frá niðurlægingu

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Albert fór meiddur af velli og það hafði mikil áhrif á lið Íslands.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Andri Lucas skoraði mark Íslands.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Hákon Arnar í leiknum.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ísland þurfti að sætta sig við hrikalega dapurt jafntefli gegn Eistlandi í undankeppni HM í dag. Lokatölur 1-1 og frammistaða Íslands svo sannarlega ekki upp á marga fiska.
Hér fyrir neðan má sjá einkunnagjöf Fótbolta.net úr leiknum.

Hákon Rafn Valdimarsson - 9
Varði frábærlega í fyrri hálfleiknum þegar Eistland fékk dauðafæri. Varði svo enn betur í byrjun seinni hálfleiks áður en hann varði vítaspyrnuna. Bjargaði því að Ísland tapaði ekki þessum leik sem hefði verið mikil niðurlæging, þó jafntefli séu líka ömurleg úrslit.
Guðlaugur Victor Pálsson - 5
Ágætur varnarlega en skilaði litlu sóknarlega. Skallaði rétt yfir markið úr hornspyrnu í seinni hálfleik.
Stefán Teitur Þórðarson - 5
Nokkuð fínn leikur í miðverðinum, löngu sendingar fram ekki alveg nógu nákvæmar.
Daníel Leó Grétarsson - 4
Tapaði skallaeinvíginu í jöfnunamarki Eistlands, hefði þurft að gera betur þar.
Mikael Egill Ellertsson - 4
Klaufalegur á boltanum, ekki hans besti dagur. Þurfum miklu meira frá honum sóknarlega.
Jón Dagur Þorsteinsson - 5
Kom ekki alveg nægilega mikið út úr því sem hann var að gera.
Ísak Bergmann Jóhannesson - 5
Átti slaka sendingu fram á við í fyrri hálfleik og í kjölfarið fengu Eistar dauðafæri. Ekki hans besti dagur.
Hákon Arnar Haraldsson - 7
Flottur í spilinu og átti stórkostlega stoðsendingu þegar Andri Lucas skoraði. Eftir að Albert fór út af, þá gerðist í raun ekkert sóknarlega nema það fór í gegnum hann.
Albert Guðmundsson - 6
Fór meiddur af velli eftir 28 mínútur. Vonandi er það ekki alvarlegt, en leit ekki vel út. Mikið áfall fyrir Ísland að missa hann út af.
Orri Steinn Óskarsson - 5
Náði ekki að koma sér nægilega mikið í takt við leikinn og var lítil ógn af honum.
Andri Lucas Guðjohnsen - 6
Skoraði flott skallamark en annars hafði hann hægt um sig. Segir kannski mikið um sóknarleik Íslands hvað Andri og Orri komust lítið í takt.
Varamenn:
Ísak Snær Þorvaldsson - 3
Ekkert eðlilega klaufaleg vítaspyrna sem hann gaf. Tvær stöður í fyrri hálfleik þar sem hann var ekki mættur á réttum tíma. Ekki góður fyrsti keppnisleikur.
Arnór Sigurðsson - 5
Gylfi Þór Sigurðsson - 5
Aðrir spiluðu ekki nóg til að fá einkunn