26.09.26 - 09:53
Brynjar Ingi Erluson
Engin fallklásúla í samningi Haaland

Haaland er ekki með fallklásúlu í samningnum sínum við Man City

Mynd: EPA

Liverpool er alvarlega að íhuga að gera skipti Araujo varanleg

Mynd: EPA

Kevin Schade er eftirsóttur

Framtíð Erling Braut Haaland, Marcos Llorente og Ronald Araujo er til umræðu í Powerade-slúðurpakka dagsins ásamt fleiri góðum molum.
Engin fallklásúla er í samningi norska framherjans Erling Braut Haaland (26) hjá Manchester City, skyldi félagið verða dæmt niður um deild. (Sport)
Man City, Liverpool og Chelsea hafa áhuga á Marcos Llorente (31), leikmanni Atlético Madríd, en hann hefur ekki enn tekið ákvörðun um framtíð sína. (Teamtalk)
Sömu félög fylgjast einnig með Alessandro Bastoni (27), varnarmanni Ítalíumeistara Inter, sem hefur einnig verið orðaður við Spánarmeistara Barcelona. (Teamtalk)
Brentford er í viðræðum við þýska landsliðsmanninn Kevin Schade um nýjan samning. Mörg félög í Þýskalandi hafa áhuga á honum, auk Arsenal og Liverpool. (Sky Sports)
Brighton undirbýr að virkja ákvæði í samningi sænska miðjumannsins Yasin Ayari (22) sem framlengir samning hans við félagið. (Football Insider)
Liverpool íhugar alvarlega að gera dvöl úrúgvæska varnarmannsins Ronald Araujo (27) varanlega eftir lán hans frá Barcelona. (Mundo Deportivo)
Juventus hefur verið boðið að fá enska varnarmanninn Tyrick Mitchell (27). Liverpool og Manchester United eru einnig áhugasöm. (Tuttosport)
Real Madrid hefur áhuga á þýska varnarmanninum Finn Jeltsch (20), sem er á mála hjá Stuttgart í heimalandinu. (AS)
Nottingham Forest og Aston Villa hafa bæði spurst fyrir um franska unglingalandsliðsmanninn Valentin Atangana, sem er samningsbundinn Al Ahli í Sádi-Arabíu. (L'Equipe)
Ross Wilson, yfirmaður íþróttamála hjá Newcastle United, ætlar að innleiða nýja stefnu í leikmannakaupum félagsins þar sem meiri áhersla verður lögð á unga og efnilega leikmenn. Það myndi marka töluverða breytingu á stefnu Newcastle á markaðnum. (The I)