26.09.26 - 20:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Spurður út í Gylfa - „Ekki alveg kominn það langt"

Gylfi í leiknum í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Gylfi í leiknum í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Gylfi Þór Sigurðsson kom inn af bekknum gegn Eistlandi í Þjóðadeildinni í kvöld og átti ágætis innkomu.
Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari, var spurður að því eftir leik hvort hann væri farinn að íhuga það að byrja með hann í næsta leik gegn Lúxemborg.

„Ég er ekki alveg kominn það langt núna," sagði Arnar og hélt áfram:
„Gylfi kom öflugur inn, kom með kraft og var hvetjandi. Það voru fleiri sem áttu góða frammistöðu í dag, en það voru líka leikmenn sem voru ekki á deginum sínum. Menn vita það. Ég ætla ekki að nafngreina menn en menn vita það sjálfir. Það skeður í okkar íþrótt."
Arnar segir að leikurinn í dag sé víti til varnaðar.
„Þetta verður erfiður riðill. Við erum sigurstranglegasta liðið en núna fá önnur lið kannski blóð á tennurnar á móti okkur og sjá möguleika sem hægt er að spila á móti okkur. Þetta var ekki góður leikur af okkar hálfu og núna bíður okkar ærið verkefnið. Við sleikjum sárin í kvöld og höldum áfram á þriðjudaginn," sagði landsliðsþjálfarinn.