Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 26. október 2021 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Deildin birti myndband af rosalegri vörslu Jökuls
Jökull Andrésson.
Jökull Andrésson.
Mynd: Getty Images
U21 landsliðsmarkvörðurinn Jökull Andrésson er aftur kominn í markið hjá Morecambe í ensku C-deildinni eftir að hafa tekið nokkra leiki á bekknum.

Jökull hefur komið mjög sterkur inn og ætlar ekki að sleppa sæti sínu í byrjunarliðinu.

Hann átti góðan leik gegn Plymouth um liðna helgi og tók einu sinni tvöfalda vörslu í leiknum. Myndband af þessari vörslu hans rataði á Twitter-síðu ensku C-deildarinnar.

Frábærlega gert hjá þessum efnilega markverði en myndbandið má sjá hér að neðan.

Jökull er einn af fjölmörgum efnilegum íslenskum markvörðum sem er að gera það gott um þessar mundir. Hann er samningsbundinn hjá Reading en er á láni hjá Morecambe út þessa leiktíð.


Athugasemdir
banner
banner
banner