Fotbolti.net
26.10.21 - 08:30
Elvar Geir Magnússon

Sky og Athletic: Allt bendir til þess að Solskjær stýri United gegn Tottenham

Ole Gunnar Solskjær.

Ole Gunnar Solskjær.

Canon

Mynd: Getty Images

Sky Sports segir að langlíklegast sé að Ole Gunnar Solskjær haldi áfram sem stjóri Manchester United og verði á hliðarlínunni gegn Tottenham á laugardaginn.

The Athletic tekur í sama streng og segir að stjórn United ætli að gefa Solskjær meiri tíma.

Allt bendi til þess að stjórn ætli að halda áfram að standa við bakið á Norðmanninum en staða hans hefur verið á allra vörum eftir 0-5 tap gegn Liverpool.
Einhverjir fjölmiðlar hafa sagt að Manchester United hafi sett sig í samband við Antonio Conte. Hinsvegar segist Sky Sports News hafa heimildir fyrir því að engin samskipti hafi enn verið þeirra á milli.

Ýmsir fjölmiðlar hafa talað um að næstu þrír leikir; gegn Tottenham, Atalanta og Manchester City, gætu ráðið örlögum Norðmannsins.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal11+1028
2Brighton11+1722
3Man City11+822
4Liverpool11+821
5Bournemouth11+418
6Brentford11+917
7Leeds11+517
8Chelsea11016
9Everton11-216
10Tottenham11+115
11Hull City11+214
12Aston Villa11-314
13Newcastle11-313
14Coventry11-812
15Fulham11-211
16Ipswich Town11-711
17Nott. Forest11-69
18Sunderland11-99
19Man Utd11-98
20Crystal Palace11-157
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.