26.10.26 - 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Hurzeler eftir tap gegn Liverpool: Eitt lið sem reyndi að vinna

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Liverpool batt enda á magnaða sigurgöngu Brighton en liðið hafði verið án taps frá því í 2. umferð deildarinnar.
Fabian Hurzeler var ánægður með sína menn en Brighton skapaði sér fleiri færi en gekk illa að setja boltann á markið.

„Það sáu það allir á vellinum að það var eitt lið sem reyndi virkilega að skapa og reyna vinna og þess vegna verð ég að hrósa leikmönnunum," sagði Hurzeler.
„Öllum leið eins og þetta hafi verið glatað tækifæri fyrir okkur því þetta var ekki bara eftir að þeir skoruðu. Líka áður, þá áttum við tvö góð færi og munurinn var sá að þeir skoruðu en ekki við."