Fotbolti.net
26.10.26 - 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Mourinho: VAR dómararnir sofnuðu

Mourinho: VAR dómararnir sofnuðu
Canon

Mynd: EPA

Real Madrid vann gríðarlega sterkan sigur á Barcelona á Nývangi, heimavelli Barcelona í gær. Eftir leikinn er bilið á milli liðanna í toppbaráttunni aðeins þrjú stig.

„Real Madrid spilar ekki til að vinna á Nývangi heldur til að vinna deildina," sagði Jose Mourinho eftir leikinn.
Mourinho var ekki sáttur með myndbandsdómgæsluna. Hann taldi að Joao Cancelo hafi átt að fá rautt spjald þegar hann steig á kálfann á Yan Diomande en það var ekkert dæmt.

„Dómarinn átti frábæran leik en VAR dómararnir sofnuðu á 60. mínútu. Það hefði átt að lyfta rauða spjaldinu fyrir brotið á Diomande," sagði Mourinho.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.