26.10.26 - 09:47
Elvar Geir Magnússon
Siggi Raggi: Ég sá fólk gráta úr gleði

Flugeldar fóru á loft í Runavík.

Mynd: NSÍ Runavík

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Flugeldar fóru á loft í Runavík.

Mynd: NSÍ Runavík
Sigurður Ragnar Eyjólfsson og lærisveinar hans í NSÍ Runavík eru orðnir Færeyjameistarar í annað sinn í sögunni eftir að liðið gerði 1-1 jafntefli við HB í næstsíðustu umferð deildarinnar í gær.
Fyrir leikinn var ljóst að NSÍ nægði eitt stig til að tryggja sér deildarmeistaratitilinn.
Siggi Raggi skrifaði um upplifun sína á Facebook en færsluna má sjá hér að neðan:
Fyrir leikinn var ljóst að NSÍ nægði eitt stig til að tryggja sér deildarmeistaratitilinn.
Siggi Raggi skrifaði um upplifun sína á Facebook en færsluna má sjá hér að neðan:

TENGT EFNI
Siggi Raggi gerði NSÍ að meisturum í fyrsta sinn í 19 ár
Hvað upplifðir þú í gær Siggi Raggi? - Ég sá fólk gráta úr gleði, ég sá fleiri stuðningsmenn koma á völlinn en búa í öllu bæjarfélaginu okkar, ég sá stúkuna okkar fulla 30 mínútum fyrir leik, ég sá gula og svarta, stolta, spennta og glaða, ég sá trommur, blys og flugeldasýningu, ég sá börn sem eignuðust fyrirmyndir, ég sá hetjur gefa eiginhandaráritanir, stráka verða að mönnum, ég sá unga menn verða að meisturum, ég sá minningar sem verða til alla ævi hjá heilu bæjarfélagi, ég sá hundruð manna missa sig við lokaflautið og hlaupa inná völlinn með mér og tryllast af fögnuði, ég sá fólk missa alla stjórn á tilfinningunum sínum, ég sá okkur lenda undir en berjast og jafna metin, líkt og lífið er sjálft.
Ég sá allt liðið okkar taka þátt í jöfnunarmarkinu. Ég sá okkur ná markmiði sem við settum saman fyrir einu ári síðan þegar enginn hafði trú á okkur. Ég hef séð lið sem gefst aldrei upp og uppskar eftir því. Besta tímabil í sögu NSÍ er staðreynd.
Til hamingju NSÍ! Saman stöndum við sterk! Við erum meistarar!