Fotbolti.net
26.10.26 - 10:03
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Atli Sigurjóns býst við að halda áfram

Fagnað eftir leik.

Fagnað eftir leik.

Canon

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik

„Ég á alla vega eitt ár eftir af samningnum við Þór en á eftir að ræða við fjölskylduna um endanlega niðurstöðu. Ég held að það séu þó meiri líkur en ekki að ég verði áfram með á næsta ári,“ sagði Atli Sigurjónsson, leikmaður Þórs, við Akureyri.net eftir að Þór hélt sæti sínu í Bestu deildinni á laugardag.

Atli, sem er 35 ára, er aldursforseti Þórsliðsins og átti að vera í stærra hlutverki á tímabilinu, en meiðsli settu strik í reikninginn.

Atli kom frá KR síðasta vetur og kom alls við sögu í 18 leikjum og lagði upp eitt mark.
Lestu um leikinn: FH 1 - 2 Þór
Atli ræddi um hetju Þórsara, Þorra Ingólfsson, í sama viðtali. Þorri skoraði bæði mörk Þórsara.

„Þorri kláraði þetta í dag með tveimur góðum mörkum, við þurfum að læsa hann einhvers staðar inni og megum ekki hleypa honum aftur suður!"

Þorri er lánsmaður hjá Þór frá Víkingi. Þorri er unglingalandsliðsmaður fæddur árið 2009 og átti stóran þátt í að liðið hélt sér uppi.
Atli Sigurjóns býst við að halda áfram
Canon

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.