26.10.26 - 10:00
Elvar Geir Magnússon
Sauma þurfti 50 spor í Pennant eftir hundaárás

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Það þurfti að sauma meira en 50 spor í Jermaine Pennant, fyrrum leikmann í ensku úrvalsdeildinni, eftir að hundur réðist á hann.
Hinn 43 ára gamli Pennant, fyrrum kantmaður Liverpool og Stoke, var úti að ganga með hundana sína tvo í norðurhluta Lundúna í síðustu viku þegar þýskur fjárhundur réðist á hann. Hundurinn beit sig fastan í fótlegginn og neitaði að sleppa takinu. Á meðan reyndi Pennant að verja eigin hund, King.

Pennant hlaut fjögur bit í árásinni og fékk aðhlynningu á sjúkrahúsi.
Í viðtali við The Sun segir hann að King hefði sloppið ómeiddur en gaf engar upplýsingar um þýska fjárhundinn. Hann sagðist hafa ákveðið að kæra árásina ekki til lögreglu.
Á mynd sem Pennant birti á Instagram sést hann með umbúðir á fætinum, sitjandi í sófa ásamt King.