Fotbolti.net
26.10.26 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

„Við spiluðum fyrir Kompany og Kimmich"

„Við spiluðum fyrir Kompany og Kimmich"
Canon

Mynd: EPA

Bayern vann 3-1 sigur á Freiburg í gær en margir sterkir leikmenn voru fjarverandi.

Luis Diaz, Jamal Musiala, Manuel Neuer og Joshua Kimmich voru m.a. fjarverandi. Þá er Vincent Kompany í veikindaleyfi eftir að hafa fallið í yfirlið á æfingu í aðdraganda leiksins.
Jonas Urbig var í markinu í fjarveru Neuer en hann tileinkaði Komany og Kimmich sigurinn. Kimmich hefur misst af síðustu tveimur leikjum eftir fráfall föður hans.

„Við spiluðum fyrir þjálfarann og Joshua Kimmich. Ég vona að Kompany sé stoltur þó ég kýs frekar að hann hvíli sig," sagði Urbig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.