Fotbolti.net
26.10.26 - 08:50
Elvar Geir Magnússon

Howe klár í viðræður við Man Utd - Emery besti kosturinn?

Eddie Howe, fyrrum stjóri Newcastle.

Eddie Howe, fyrrum stjóri Newcastle.

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Það virðist óumflýjanlegt að Michael Carrick verði rekinn frá Manchester United en stjórnendur félagsins funda nú um stöðu mála. Hver tekur þá við á Old Trafford?
Eddie Howe, fyrrverandi stjóri Newcastle United, hefur áhuga á að ræða við Manchester United ef félagið rekur Michael Carrick, sem situr undir mikilli pressu. Howe er án starfs. (Sky Sports)

Jamie Carragher telur að Unai Emery, stjóri Aston Villa, yrði besti kosturinn fyrir Manchester United. Emery er þekktur fyrir að stýra öllum stóru málunum sjálfur bak við tjöldin. (Sky Sports)

Líklegastir til að taka við United eru Howe og Julian Nagelsmann, sem hætti sem landsliðsþjálfari Þýskalands eftir HM í sumar. (Sky Sports)

Manchester United hefur augastað á Jarrad Branthwaite (24), varnarmanni Everton og enska landsliðsins, en félagið hyggst gera miklar breytingar á varnarlínu sinni. (Football Insider)

Sean Dyche, fyrrverandi stjóri Watford, Burnley, Everton og Nottingham Forest, er líklegasti kandídatinn í starf stjóra Crystal Palace, verði Pierre Sage rekinn frá félaginu. (Telegraph)

Thomas Frank, fyrrverandi stjóri Brentford, og Vitor Pereira, fyrrverandi stjóri Wolves, gætu einnig komið til greina, ásamt Robbie Keane, fyrrverandi stjóra Ferencvaros. (Talksport)

Sænski miðjumaðurinn Lucas Bergvall (20), sem leikur með Tottenham, er á óskalista Napoli og Barcelona. (Tuttomercato)

Barcelona og Paris St-Germain reyna nú að ná samkomulagi um JJ Gabriel (16) hjá Manchester United. (Football Insider)

Arsenal, Liverpool og Manchester United fylgjast grannt með Lennart Karl (18), þýskum miðjumanni Bayern München. (Teamtalk)

Brasilíski varnarmaðurinn Dodo (27) mun yfirgefa Fiorentina þegar samningur hans rennur út í sumar. Orðrómur er í gangi um að AC Milan, Juventus og Barcelona hafi áhuga. (Football Italia)

Brighton og RB Leipzig eru meðal þeirra félaga sem hafa áhuga á Adin Licina (19), þýskum miðjumanni Juventus sem leikur nú sem lánsmaður hjá Cremonese. (Gianluca di Marzo)
Unai Emery, stjóri Aston Villa.

Unai Emery, stjóri Aston Villa.

Canon

Mynd: EPA

Thomas Frank er orðaður við Palace.

Thomas Frank er orðaður við Palace.

Canon

Mynd: Twitter

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.