26.10.26 - 13:17
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Áhugi frá meisturunum í áströlsku deildinni á Adam Páls

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Adam Ægir Pálsson verður samningslaus í lok árs en hann skrifaði undir samning hjá KA sem gidlir út árið þegar hann gekk í raðir félagsins frá Val í júlí.
Adam er 28 ára sóknarmaður sem skoraði fimm mörk og lagði upp tvö í þrettán leikjum með KA og endaði tímabilið með fjögur mörk í fjórum leikjum. Hjá Val hafði hann skorað þrjú mörk og lagt upp eitt í tíu deildarleikjum.
Hann var orðaður við fleiri félög í Bestu deildinni sumar en ákvað að semja við KA þegar hann fór frá Val.

Liðið náði ekki að halda sæti sínu í deildinni og samkvæmt heimildum Fótbolta.net eru talsverðar líkur á að hann færi sig um set í vetur og hann er farinn að líta í kringum sig.
Áhugi er á honum frá nýsjálenska félaginu Auckland FC og finnska félaginu TPS. Auckland spilar í áströlsku A-deildinni og varð meistari á síðasta tímabili.