Yfirferðin með Elízu Gígju: Hver vinnur Ballon d'Or?

Aitana Bonmatí hefur unnið síðustu þrjú ár

Mynd: EPA

Alexia Putellas vann gullboltann 2021 og 2022

Mynd: EPA

Putellas var frábær með Barcelona á síðasta tímabili

Mynd: EPA

Ewa Pajor átti frábært tímabil

Mynd: EPA

Melchie Dumornay raðaði inn mörkum fyrir Lyon

Mynd: EPA

Bunny Shaw skoraði 21 mark í ensku deildinni

Mynd: EPA

Georgia Stanway skoraði fyrra mark Arsenal

Mynd: EPA

Alessia Russo var örugg á punktinum

Mynd: EPA

Elisabeth Terland skoraði dramatískt jöfnunarmark

Mynd: EPA

Caroline Beata Olsson skoraði eitt af mörkum Barcelona

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Felicia Schröder hefur byrjaði vel með Real Madrid

Mynd: EPA

Aitana Bonmatí hefur unnið síðustu þrjú ár

Mynd: EPA

Í kvöld verða Ballon d’Or verðlaunin afhent kvennamegin í áttunda sinn. Verðlaunin voru afhent í fyrsta skiptið árið 2018 og hafa verið afhent síðan fyrir utan árið 2020 vegna Covid. Ada Hegerberg var fyrst að hljóta verðlaunin og Megan Rapinoe fylgdi henni á eftir. Síðustu fimm ár hafa verðlaunin farið til Spánar, fyrst hlaut Alexia Putellas þau tvö ár í röð, 2021 og 2022, en síðustu þrjú skipti hefur Aitana Bonmatí hreppt gullboltann. Spánverjar, og Barcelona, hafa því átt sigurvegarann síðustu fimm ár en hverjum hlotnast sá heiður í þetta skiptið?
Það liggur fyrir að Aitana Bonmatí verði ekki sigurvegarinn fjórða árið í röð en hún er ekki tilnefnd. Hún meiddist illa í landsliðsverkefni í nóvember 2025 og missti því úr stóran part af síðasta tímabili. Það lítur þó ekki út fyrir það að nýtt andlit taki við verðlaununum þar sem Alexia Putellas er talin líklegust til sigurs.
Putellas getur jafnað þrennu Bonmatí
Eftir krossbandaslit árið 2022 hefur Putellas komið ótrúlega til baka og hefði hæglega getað unnið verðlaunin á síðasta ári. Eftir frábært tímabil 2024-2025 hélt hún uppteknum hætti og spilaði frábærlega í Barcelona liði sem varð fyrir miklum áföllum, m.a. meiðsli Bonmatí. Putellas steig upp og leiddi Barcelonaliðið til sigurs í öllum fjórum keppnum sem þær tóku þátt í. Þær unnu þrennuna heima fyrir ásamt því að vinna sannfærandi 4-0 sigur á Lyon í úrslitum Meistaradeildarinnar þar sem fernan var fullkomnuð. Hún var valin leikmaður ársins í Meistaradeildinni og verður að teljast líklegur sigurvegari Gullboltans.
Þrátt fyrir að Putellas sé líklegust eru leikmenn sem veita henni harða samkeppni. Ein af þeim er fyrrum liðsfélagi hennar hjá Barcelona Ewa Pajor. Það verður að teljast líklegt að leikmaður Barcelona hreppi titilinn vegna þess hve mikið er horft til þess hversu marga titla leikmenn hafa unnið á árinu. Ewa Pajor, líkt og Putellas, var gríðarlega stór ástæða fyrir frábæru gengu Barcelona á síðustu leiktíð. Hún var Gerd Muller verðlaunin í fyrra fyrir að vera markahæst á árinu og hélt áfram á síðustu leiktíð að raða inn mörkum. Hún skoraði í öllum fimm leikjum útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar þar sem þær slóu út Real Madrid, Bayern Munich og að lokum Lyon í úrslitum.
Tvær frá Karabískahafinu sem hafa slegið í gegn
Melchie Dumornay, leikmaður Lyon og Haítí, hefur einnig verið nefnd en hún átti stórkostlegt tímabil í Frakklandi þar sem hún raðaði inn mörkum og stoðsendingum. Lyon vann þrennuna í Frakklandi, líkt og Barcelona, en eins og þær spænsku eru þær með svo ótrúlegt yfirburðar lið heima fyrir að það liggur við að vera skylda. Það verður því að teljast líklegt að sigur í Meistaradeildinni muni vega þungt í niðurstöðunni. Dumornay er þó nafn sem fólk ætti að muna eftir því að hún er líkleg til að hreppa þessi verðlaun á næstu árum.
Sú sem er talin líklegust frá Englandi er hin sískorandi, jamaíska, Khadija (Bunny) Shaw sem spilar fyrir Manchester City. Hún skoraði 21 mark í 22 leikjum fyrir City sem unnu ensku deildina í fyrsta sinn í tíu ár. Ásamt því að vinna deildina unnu þær einnig bikarkeppnina og áttu því frábæru gengi að fagna á tímabilinu. Það er líklegt að sú staðreynd að City spilaði ekki í Meistaradeildinni á síðasta tímabili dragi úr líkum Shaw að hljóta verðlaunin en allar líkur eru á því að hún endi ofarlega þrátt fyrir það einungis vegna talnanna sem hún skilaði í mörkum og stoðsendingum á tímabilinu.
Langþráður sigur Arsenal
Arsenal tókst loksins að vinna leik í ensku deildinni en þær hafa byrjað tímabilið illa og höfðu aðeins unnið einn leik í deildinni fram að því. Þær heimsóttu Tottenham í nágrannaslag og lentu undir snemma leiks þegar hornspyrna Victoria Pelova endaði á enninu á Cathinka Tandberg sem stangaði boltann inn þrátt fyrir að þrír leikmenn Arsenal hafi hangið í henni. Arsenal voru þó ekki lengi að svara fyrir sig og jafna metin þegar Alessia Russo fann Georgia Stanway utarlega í teignum og hún tók færið vel þannig að Lize Kop kom engum vörnum við þrátt fyrir að ná fingrunum í boltann. Á 56. mínútu skoraði Russo svo sjálf þegar Arsenal fengu mjög umdeilda vítaspyrnu eftir að hendi var dæmd á Tottenham. Ekkert VAR er dómurunum innan handar í ensku deildinni, vítið stóð og Russo skoraði úr því af miklu öryggi. Langþráður sigur Arsenal staðreynd og Renée Slegers, þjálfari liðsins, mögulega bjó sér til eitthvað andrými í starfi en hún situr í ansi heitu sæti.
Manchester City töpuðu sínum fyrstu stigum þegar þær heimsóttu nágranna sína í Manchester United í gær. Bunny Shaw, sem var lítið búin að sjást í leiknum, fékk boltann inn á teignum með bakið í markið, náði að snúa með varnarmann í bakinu og skilaði boltanum í netið með hnitmiðuðu skoti. Gott mark frá Shaw sem var að spila sinn 100. leik í ensku deildinni. Shaw gerðist svo sek um mistök á 89. mínútu þegar heimakonur settu langan bolta inn á teig City, Shaw átti auman skalla beint fyrir fætur Elisabeth Terland sem tók boltann í fyrsta og jafnaði metin. 1-1 voru lokatölur og City þurfa að sætta sig við töpuð stig.
Chelsea á toppinn
Chelsea nýttu tækifærið og komu sér fyrir á toppi deildarinnar eftir jafnteflið í Manchester slagnum en þær mættu Crystal Palace. Molly Bartrip kom Palace í 1-0 eftir 20 mínútur og þannig var staðan í hálfleik. Chelsea tóku yfir leikinn í seinni hálfleik og jöfnuðu strax á 51. mínútu þegar Melvine Malard skoraði. Hún var svo aftur á ferðinni á 75. mínútu og kom Chelsea í 2-1 áður en Sandy Baltimore kláraði leikinn endanlega á 90. mínútur þegar hún skoraði úr víti. Chelsea og City eru bæði með 19 stig en Chelsea fer á toppinn með betri markatölu.
London City Lionesses fylgja þessum tveimur fast á eftir með 16 stig en þær gerðu 2-2 jafntefli við Liverpool. Beata Olsson kom Liverpool í 1-0 úr víti á 19. mínútu. Sú forysta entist ekki lengi því Freya Godfrey jafnaði metin á 22. mínútu. Rétt fyrir hálfleik kom Kadidiatou Diani London City Lionesses í 2-1 og leikurinn virtist ætla að enda þannig en á 95. mínútu var Jana Fernández svo óheppin að skora sjálfsmark og gestirnir sneru því til baka til London með eitt sitg í farteskinu.
Allt eins og það á að vera á Spáni og í Frakklandi
Í spænska boltanum fór allt eftir bókinni en Barcelona unnu öruggan 3-0 sigur á Granada þar sem Esmee Brugts og Caroline Graham Hansen skoruðu eitt mark á mann og Teresa Mérida bætti við sjálfsmarki á 90. mínútu. Real Madrid réttmörðu UD Tenerife 3-2 með mörkum frá Lineth Beerensteyn, Signe Bruun og Felicia Schröder. Í Frakklandi eru Lyon enn með fullt hús stiga og markatöluna 36-3 eftir 6 umferðir. Þær fengu Marseille í heimsókn í leik sem endaði 5-0. PSG gera sitt besta að halda í við þær og eru þrem stigum á eftir með markatöluna 9-5 en þær fengu Montpellier FC í heimsókn og unnu aðeins 1-0 þrátt fyrir mikla yfirburði.

Alexia Putellas vann gullboltann 2021 og 2022

Mynd: EPA

Putellas var frábær með Barcelona á síðasta tímabili

Mynd: EPA

Ewa Pajor átti frábært tímabil

Mynd: EPA

Melchie Dumornay raðaði inn mörkum fyrir Lyon

Mynd: EPA

Bunny Shaw skoraði 21 mark í ensku deildinni

Mynd: EPA

Georgia Stanway skoraði fyrra mark Arsenal

Mynd: EPA

Alessia Russo var örugg á punktinum

Mynd: EPA

Elisabeth Terland skoraði dramatískt jöfnunarmark

Mynd: EPA

Caroline Beata Olsson skoraði eitt af mörkum Barcelona

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Felicia Schröder hefur byrjaði vel með Real Madrid

Mynd: EPA
