þri 26. nóvember 2019 19:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sigurður Arnar verið að æfa með Al Arabi
Sigurður Arnar Magnússon.
Sigurður Arnar Magnússon.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sigurður Arnar Magnússon, varnarmaður ÍBV, hefur undanfarnar vikur æft með Al Arabi í Katar.

Þetta kemur fram á vefsíðu ÍBV.

Heimir Hallgrímsson, fyrrum landsliðsþjálfari og fyrrum þjálfari ÍBV, þjálfar Al Arabi og með liðinu leika landsliðsmennirnir Birkir Bjarnason og Aron Einar Gunnarsson.

„Um er að ræða þriggja vikna dvöl en eins og allir vita þjálfar Heimir Hallgríms lið Al Arabi. Þar spila einnig landsliðsmennirnir Aron Einar Gunnarsson og Birkir Bjarnason. Siggi kemur heim í næstu viku og hefur æft við toppaðstæður ytra," segir á vefsíðu ÍBV.

Sigurður lék 18 leiki í Pepsi Max-deildinni síðasta sumar og skoraði tvö mörk er ÍBV féll úr deild þeirra bestu.

Sjá einnig:
Leikmenn Al-Arabi æfa í Vestmannaeyjum
Athugasemdir
banner
banner
banner