Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 26. nóvember 2021 11:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
„Gæti kallað hana vinkonu mína þegar við erum ekki á vellinum"
Mér finnst ótrúlega mikilvægt að eiga svona gott samband við þjálfarann.
Mér finnst ótrúlega mikilvægt að eiga svona gott samband við þjálfarann.
Mynd: Guðmundur Svansson
Frábær í alla staði og hefur hjálpað mér mjög mikið
Frábær í alla staði og hefur hjálpað mér mjög mikið
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sveindís Jane Jónsdóttir lék hjá Kristianstad á liðinni leiktíð. Hún var þar á láni frá þýska stórliðinu Wolfsburg. Hjá Kristianstad lék hún með Sif Atladóttur og undir stjórn Elísabetar Gunnarsdóttur.

Sjá einnig:
Sveindís fer fögrum orðum um Sif: Ótrúlega þakklát

Á fréttamannafundi í gær, eftir að Sveindís hafði átt stórleik gegn Japan, var hún spurð út í Kristianstad.

Að enda í Meistaradeildarsæti, hversu góður endir er það á tímabilinu?

„Það er geggjað, það er einhvern veginn í sögu Kristianstad að klára verkefnið bara í síðasta leik. Við viljum ekki vera með neitt öruggt þegar nokkrir leikir eru eftir. Þetta hefur ótrúlega oft verið þannig í síðasta leik hjá Kristianstad að það eitthvað undir, sem er líka bara skemmtilegast," sagði Sveindís.

„Að ná þriðja sætinu er frábært og geggjað fyrir félagið. Ég er ótrúlega sátt með þann árangur."

Hvernig meturu Elísabetu sem þjálfara?

„Hún er geggjuð, eina orðið sem ég get notað til að lýsa henni. Hún er frábær karakter, ógeðslega skemmtileg líka utan vallar og það er hægt að tala við hana um allt. Mér finnst mjög mikilvægt að geta talað við þjálfarann um eiginlega allt. Ég gæti kallað hana vinkonu mína þegar við erum ekki á vellinum. Ég fer bara til hennar og við spjöllum um allt. Mér finnst ótrúlega mikilvægt að eiga svona gott samband við þjálfarann."

„Hún er geggjuð persóna, get ekki lýst henni öðruvísi, frábær í alla staði og hefur hjálpað mér mjög mikið. Ég hef bætt mig alveg helling hjá henni,"
sagði Sveindís.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner