Fotbolti.net
26.11.26 - 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Bruno bjó til þúfuna sem hjálpaði honum að skora

Bruno bjó til þúfuna sem hjálpaði honum að skora
Canon

Mynd: EPA

Meistaradeild
Bruno Fernandes skoraði skrautlegt mark í 2-2 jafntefli Man Utd gegn Sporting í Meistaradeildinni í gær.

Man Utd var marki undir í hálfleik en Fernandes jafnaði metin með marki úr vítaspyrnu strax í upphafi seinni hálfleiks. Hann kom liðinu síðan yfir tveimur mínútum síðar.
Sjáðu skrautlegt mark Bruno - „Þekkir hverja þúfu á gamla heimavellinum"
TENGT EFNI

Sjáðu skrautlegt mark Bruno - „Þekkir hverja þúfu á gamla heimavellinum"

Þá skoraði hann með skoti fyrir utan teiginn sem fór í þúfu og boltinn skaust yfir Kaique Pereira í marki Sporting og í netið.

Hann var að pressa á Pereira og rann til sem varð til þess að hola myndaðist í grasinu fyrir framan markið. Aðeins nokkrum sekúndum síðar skoraði hann markið.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.