Fotbolti.net
26.11.26 - 12:42
Elvar Geir Magnússon

Fyrirliðinn segir framkomu Bayern við Musiala óboðlega

Jamal Musiala er með taugasjúkdóm.

Jamal Musiala er með taugasjúkdóm.

Canon

Mynd: EPA

Stjórnarmenn þýska stórveldisins Bayern München hafa sætt harðri gagnrýni fyrir ummæli sín um Jamal Musiala og heilsufarsvandamál hans. Nú hefur fyrirliðinn Joshua Kimmich gagnrýnt eigið félag opinberlega.

Heilsu Musiala, sem er 23 ára, hrakaði í sumar þegar hann hneig niður á vellinum. Í kjölfarið kom í ljós að hann væri með taugasjúkdóm, svokallað störuflog, og hefur verið leitað leiða til að hjálpa honum að ná tökum á vandanum án þess að það komi niður á heilsu hans eða frammistöðu.

Musiala skrifaði undir nýjan samning við Bayern fyrir ekki svo löngu síðan og er talið að hann þéni um 25 milljónir evra á ári. Stjórnarmaðurinn Karl-Heinz Rummenigge setti þrýsting á Musiala í gegnum fjölmiðla að taka á sig launalækkun.

„Reynslan af þessu bendir til þess að það verði erfitt fyrir hann að ná því stigi sem hann var áður. Há laun hans eru ekki lengur sjálfbær. Enginn vill kaupa hann við þessar aðstæður. Umræðan hefur ekki átt sér stað ennþá, en við verðum að hugsa um fjármálin," sagði Rummenigge.
„Enginn vill kaupa Musiala"
TENGT EFNI

„Enginn vill kaupa Musiala"

Fleiri stjórnarmenn Bayern hafa tjáð sig um málið við fjölmiðla en margir hafa tekið upp hanskann fyrir Musiala og gagnrýnt þá framkomu sem honum er sýnd.

Má ekki gerast á svona hátt
Kimmich var spurður út í málið eftir 2-1 tap Bayern gegn Lille í Meistaradeildinni í gær.

„Það sem hefur átt sér stað er einfaldlega eitthvað sem má aldrei gerast á þennan hátt. Mér finnst þetta algjörlega óskiljanlegt. Þetta er eitthvað sem ætti að ræða fyrir luktum dyrum, eitthvað sem hægt er að ræða við umboðsmann Jamal eða við Jamal sjálfan," segir Kimmich.

„Ég skil ekki er hvernig þetta er miðlað opinberlega. Það má aldrei gerast að leikmaður sé látinn bera byrðarnar. Auðvitað kemur félagið alltaf fyrst og er stærra en leikmenn, en það er ekki stærra en manneskjan. Þetta er heldur ekki eitthvað sem þekkist hjá Bayern."

„Ég er að umgangast hann á hverjum degi og sé hvað hann leggur á sig. Það er ekki eins og hann sé að lenda í vandræðum vegna þess að hann sé ófagmannlegur. Þvert á móti, hann er mættur á hverjum degi og vill að sjálfsögðu fá það besta út úr sjálfum sér. Hann vinnur hörðum höndum og nýtur þess virkilega að vera hluti af liðinu. Ég vona að hann viti að við öll stöndum 100% á bak við hann."

Mun kannski aldrei ná sömu hæðum?
Uli Höness, heiðursforseti Bayern München, tjáði sig fyrstu við fjölmiðla og sagði það óvíst að Musiala muni aftur nú sömu hæðum og áður.

„Við erum í ákveðinni klípu með hann. Musiala er með sjúkdóm sem ekki er hægt að lækna, en hægt er að meðhöndla hann að einhverju leyti með lyfjum. Það er hins vegar óvíst hvort hann nái aftur að sýna sömu frammistöðu og áður. Hann fær auðvitað enn greidd laun, en ímyndaðu þér ef Bayern færi nú að endurskoða samninginn og segði: ‚Það sem hann getur lagt af mörkum í dag er ekki lengur í samræmi við það sem samið var um,“ sagði Höness.

Musiala hefur skorað tvö mörk og átt eina stoðsendingu í sex leikjum á tímabilinu.
Joshua Kimmich.

Joshua Kimmich.

Canon

Mynd: EPA

Fyrirliðinn segir framkomu Bayern við Musiala óboðlega
Canon

Mynd: EPA

 Karl-Heinz Rummenigge og Uli Höness.

Karl-Heinz Rummenigge og Uli Höness.

Canon

Mynd: EPA

Bundesliga - karlar

#LiðLmunStig
1Dortmund10+1024
2Bayern10+2022
3Freiburg10+1122
4RB Leipzig10+1821
5Leverkusen10+719
6Werder10+618
7Frankfurt10-415
8Stuttgart10013
9Elversberg10-213
10Augsburg10+212
11Hoffenheim10-212
12Hamburger10-1412
13Mainz10-310
14Köln10-410
15Paderborn10-710
16Schalke 0410-67
17Union Berlin10-187
18Gladbach10-144
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.