26.11.26 - 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Prestianni á óskalista PSG - Vilja í það minnsta fá 200 milljónir


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Gianluca Prestianni, leikmaður Benfica, hefur verið orðaður við PSG en Benfica er ekki á þeim buxunum að selja Argentínumanninn.
Prestianni er sagður vera með 100 milljón evra riftunarákvæði í samningi sínum en Marco Silva, stjóri Benfica, segir að það sé ekki nógu hár verðmiði.
Prestianni er sagður vera með 100 milljón evra riftunarákvæði í samningi sínum en Marco Silva, stjóri Benfica, segir að það sé ekki nógu hár verðmiði.
„Ég er ekki smeykur. Þið vitið hvað riftunarákvæðið er. Hvort sem mér líkar það betur eða verr, ef það væri 200 milljónir þá myndum við kannski skoða það," sagði Silva.
Silva er rólegur yfir stöðunni en hann segir að félagið sé í viðræðum við leikmanninn um framlengingu á samningnum. Núgildandi samningur Prestianni rennur út árið 2029.
Silva er rólegur yfir stöðunni en hann segir að félagið sé í viðræðum við leikmanninn um framlengingu á samningnum. Núgildandi samningur Prestianni rennur út árið 2029.
