26.11.26 - 12:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Halli Heimis aðstoðar Óskar Smára (Staðfest)

Mynd: Stjarnan

Mynd: Stjarnan

Hallgrímur Heimisson er nýr aðstoðarþjálfari kvennaliðs Stjörnunnar en hann kemur til félagsins frá Val þar sem hann hefur starfað síðustu ár. Hjá Stjörnunni mun hann aðstoða Óskar Smára Haraldsson sem er á leið í sitt annað ár sem aðalþjálfari kvennaliðsins.
Samhliða því að vera aðstoðarþjálfari kvennaliðsins mun Hallgrímur koma að uppbyggingu og þróun hjá kvennaliði KFG, venslaliðs Stjörnunnar.
Hallgrímur er þrítugur Eyjamaður sem er með UEFA A þjálfaragráðuna.

TENGT EFNI
Bubka Sports Lab hefur formlega opnað
„Hallgrímur kemur inn í öflugt starf hjá félaginu og hlökkum við mikið til samstarfsins. Við erum sannfærð um að reynsla hans, metnaður og þekking muni nýtast vel í áframhaldandi uppbyggingu og þróun leikmanna hjá Stjörnunni," segir í tilkynningu Stjörnunnar.