26.11.26 - 10:56
Elvar Geir Magnússon
Lammens öruggur með sætið því varamarkvörðurinn er ekki nógu góður

Lammens hefur gert dýrkeypt mistök.

Mynd: EPA

Karl Darlow, fyrrum leikmaður Leeds, er varamarkvörður Man Utd.

Mynd: EPA

Lammens hefur gert dýrkeypt mistök.

Mynd: EPA

Það heyrast efasemdarraddir um hvort belgíski markvörðurinn Senne Lammens sé nægilega góður til að hjálpa Manchester United að komast aftur í fremstu röð. Hann átti arfadapran leik í 2-2 jafnteflinu gegn Sporting Lissabon í gær.
Lammens var brotlegur og gaf vítaspyrnu þegar Sporting komst yfir í leiknum og missti svo boltann eftir fyrirgjöf þegar Sporting jafnaði á 80. mínútu. Hann varði líka víti í leiknum en það fellur í skuggann af mistökum hans.

TENGT EFNI
Með efasemdir um Lammens
Sjálfstraustið áhyggjuefni
Peter Schmeichel kom Lammens til varnar í sjónvarpsútsendingu frá leiknum og sagði að hann hafi ekki fengið neina hjálp frá varnarmönnum sínum að undanförnu. Schmeichel telur að Lammens eigi ekki að missa sæti sitt.
„Mauricio Pochettino er kominn inn, hann hefur tekið með sér sitt eigið starfsteymi sem þýðir að hann er með nýjan markmannsþjálfara. Kannski er það eitthvað sem getur breytt þessu fyrir hann,“ segir Schmeichel.
Jamie Carragher segir að Lammens muni ekki missa sæti sitt, einfaldlega þar sem Karl Darlow varamarkvörður sé ekki nægilega góður til að taka stöðuna af honum.
„Markvörðurinn er alltaf í kastljósinu þegar hann gerir mistök. Ég held samt að varamarkvörðurinn sé ekki það góður að sama hversu illa markvörðurinn spilar þá breytir maður ekki," segir Carragher. „En maður hefur áhyggjur af sjálfstrausti Lammens núna. Áhugamarkvörður á ekki að gera svona mistök eins og hann gerir í jöfnunarmarkinu."

Lammens ???????????????? https://t.co/sKoiTfP0q8
— DM (@DeclanMode_) November 25, 2026